Dagbók Dísanna

Hér skrásetja foreldrar okkar merkisviðburði ásamt sögum úr hversdagnum

Þórdís Erla duglega

Skráð þann 19. júlí 2009 kl. 21:00 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla er búin að læra að skrifa nafnið sitt og kann fullt af stöfum. Hún er líka orðin svo sjálfstæð, fór með mömmunni í sund og þvoði hárið á sér sjálf og klæddi sig, greiddi sér, blés hárið og setti á sig kinnalit ;) Hún er líka mjög dugleg að ala systur sína upp og segja henni hvað hún má og má ekki. Alger mamma hehe ;)

Sumarfrí

Skráð þann 19. júlí 2009 kl. 20:57 | Engar athugasemdir

Litlu Dísirnar eru komnar í sumarfrí á leikskólanum en þar sem foreldrarnir eru ekki alveg jafnheppnir þá fengu skvísurnar Margréti "stjúpfrænku" til að koma og passa sig fyrstu vikuna og svo fóru þær í pössun til ömmu Erlu. Þar er stíft skemmtiprógramm alla daga og trampólín í garðinum þannig þær skemmta sér konunglega þar. Á meðan Bergdís Freyja ... Lesa meira

Orðaforði

Skráð þann 19. júlí 2009 kl. 20:54 | Engar athugasemdir

Nú þegar Bergdís Freyja er rúmlega 13 mánaða kann hún að segja eftirfarandi: Mamma = Mamma Mammammamm = Amma Babba = Pabbi Meija = Meira ei! = Nei (hristir gjarnan höfuðið um leið og hún segir þetta) ámm = já/jámm Hoff = Voff - á við um ýmis dýr, upphaflega hund Grrrr = á einnig við um ýmis dýr, upphaflega ljón Hæ = hæ Alló = Halló Bæbæ = Bæbæ (og vinkar og allt ... Lesa meira

15 skref and counting..

Skráð þann 19. júlí 2009 kl. 20:49 | Engar athugasemdir

Bergdís - litli montrass, er farin að taka sín fyrstu skref. Byrjaði 1. júlí í æfingabúðunum og komst upp í 5 skref þann daginn og er núna komin upp í 15. Er heldur betur montin með sig litla skottið, enda má hún alveg vera það, er alveg ótrúlega dugleg lítil snúlla.

Standandi

Skráð þann 29. júní 2009 kl. 22:41 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja er búin að vera mikið að æfa sig að standa seinustu 2-3 daga. Er orðin rosa góð í að standa út á miðju gólfi - óstudd og er svaka montin af sér og stóra systir er þvílíkt stolt af henni og kallar stöðugt á foreldrana til að sýna litlu systur ;)

Afmælisstelpur

Skráð þann 11. júní 2009 kl. 22:00 | Engar athugasemdir

Síðastliðinn sunnudag varð Bergdís Freyja 1 árs og á morgun verður Þórdís Erla 4ra ára. Við héldum sameiginlega veislu fyrir þær á sunnudaginn og þær fengu fullt fullt af gestum og fínum gjöfum og áttum við öll góðan dag sem endaði svo í grillveislu. Tennurnar hrúgast upp í Bergdísi núna og er hún komin með 6 tennur og fleiri rétt ókomnar. Hún fór ... Lesa meira

Fréttir af Þórdísi Erlu

Skráð þann 25. apríl 2009 kl. 21:43 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla er búin að læra að renna upp sjálf og læra að róla sér sjálf. Í lok mars fór hún og fékk rör í eyrun í annað sinn, en hún er búin að vera full af slími í eyrunum og hefur það haft áhrif á heyrnina en rörin ættu að bæta úr því. Hún er með mikinn málskilning og orðaforða og notar hendurnar mikið þegar hún er að tala enda lærir ... Lesa meira

Fréttir af Bergdísi Freyju

Skráð þann 25. apríl 2009 kl. 21:43 | Engar athugasemdir

Nú er Bergdís Freyja orðin 10 mánaða og er dugleg að labba með. Þriðja tönninn byrjaði að brjótast fram í dag og fylgdu því miklar kvalir fyrir litla greyið. Er hún þá með tvær  í neðri góm og eina framtönn hægra megin í efri góm. Hún er afskaplega glöð og hamingjusöm alltaf - ótrúlega þægileg lítil krúttmús. Hún fór að sofa alla nóttina um ... Lesa meira

Ferðalag

Skráð þann 25. apríl 2009 kl. 21:26 | Engar athugasemdir

Í janúar fórum við austur til afa Smára og dvöldumst þar í góðu yfirlæti, lékum okkur í snjónum, fórum í heimsóknir og borðuðum fullt af nammi! Við fórum líka á Oddskarð og mamma skellti sér á skíði en Dísirnar léku sér á sleða og snjóþotu.

Skautafólk

Skráð þann 12. janúar 2009 kl. 22:13 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla skellti sér á skauta í gær með foreldrum sínum ásamt Þóru Sillu vinkonu sinni og foreldrum hennar. Það var voðalega skemmtilegt. Hún var reyndar smá smeyk og ekkert sérlega stöðug en sýndi miklar framfarir á þeim tíma sem við vorum þarna þannig við verðum bara endilega að fara fljótlega aftur þar til hún nær að halda jafnvægi sjálf. ... Lesa meira

Tönn nr. 2

Skráð þann 12. janúar 2009 kl. 22:09 | Engar athugasemdir

Litla tönnslan hennar Bergdísar Freyju fékk félagsskap í gær en þá poppaði tönnin við hliðina á upp :)

Tölvuséní

Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:40 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla er orðin tölvuséní - kannski ekki skrítið með þessa tölvunördaforeldra - en samt, við vorum steinhissa þegar við komumst að því hvað hún er orðin klár. Hún er búin að ná fullri stjórn á músinni - og það fartölvumús sem er nú aðeins erfiðari að stjórna en utanáliggjandi mús. Hún spilar tölvuleikinn Doppu alveg sjálf - veit hvað hún á ... Lesa meira

Viðburðarík vika hjá Bergdísi Freyju

Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:37 | Engar athugasemdir

Laugardaginn 3. janúar sl. fann EBS fyrstu tönnina í BF - vinstri framtönn í neðri góm. Skvísan er búin að vera undanfarið á þvílíka fartinu - þeysast um gólfið með „réttum“ skriðhreyfingum og búin að vera að æfa sig að fara upp á 4 fætur en hefur ekki alveg náð að samhæfa þetta tvennt og dottið nokkrum sinnum á nebbann í þessum æfingum. Á ... Lesa meira

Rest og áramót

Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:28 | Engar athugasemdir

Á annan í jólum fórum við í jólaboð til Alidu frænku og var fullt af kræsingum þar ásamt skemmtilegum pakkaleik. Á milli jóla- og nýárs vorum við bara í leti heima, horfðum á teiknimyndir. Á gamlárskvöld kom svo amma Sigga til okkar og við vorum í þvílíkum rólegheitum hérna. Bergdís Freyja sofnaði um 8 leytið en vaknaði við öll lætin á miðnætti svo ... Lesa meira

Aðfangadagur og jóladagur

Skráð þann 26. desember 2008 kl. 00:32 | 1 athugasemd

Aðfangadagur var voðalega fínn hjá okkur. Amma-Sigga, Bjarki, Amma-Erla, Þorgeir og Anton komu til okkur og borðuðum við möndlugraut í forrétt, Fannar hreppti möndluna og fékk agalega krúttlega englastyttu í möndlugjöf. Í aðallrétt var svo bæði heitur hamborgarahryggur með sósu og kaldur hamborgarahryggur með bræddu smjöri og meðlæti, jólaöl og ... Lesa meira

Framfarir hjá BF

Skráð þann 25. desember 2008 kl. 23:41 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja krúttumús tekur miklum framförum þessa dagana. Hún er orðin frekar stöðug og dugleg að sitja sjálf. Hún dregur sig áfram af mikilli tækni og fór í fyrsta sinn upp á fjóra fætur föstudaginn 19. des sl. - Berglind vinkona okkar er vitni að því - mamman var bara að stússast í eldhúsinu þegar skvísan ákvað að sýna sig aðeins fyrir gestunum. Í seinustu ... Lesa meira

Jólasveinahræðsla

Skráð þann 25. desember 2008 kl. 23:13 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var ansi skelkuð við jólasveina í fyrra en fékkst þó til að setja skóinn útí glugga - þ.e.a.s stofugluggann - henni leist ekkert á að hafa skóinn í sínum glugga. Síðan í nóvember hefur hún talað reglulega um að hún sé sko ekkert hrædd við jólasveina lengur - það hafi nú bara verið þegar hún var 2ja ára og sagði öllum sem heyra vildu ... Lesa meira

...til að snýta þér

Skráð þann 29. nóvember 2008 kl. 10:14 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var að þykjast taka nebbann af mömmu sinni og ég sagði að það væri allt í lagi - ég þyrfti ekki að hafa neitt nef. Hún var nú ekki alveg sammála því og ég bað hana því að segja mér afhverju ég þyrfti nef.  „Svo þú getir snýtt þér!“ svaraði daman þá hehe.

6910 gr og 66,5 cm

Skráð þann 29. nóvember 2008 kl. 10:12 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja var 6910 gr og 66,5 cm í 5 mánaða skoðuninni sem hún fór í 6. nóv síðastliðinn. Rosa flott stelpa - öllu nettari en stóra systir sem var 1100 grömmum þyngri og 3 cm lengri á sama tíma :) Skvísan er rosa dugleg að vera á maganum og dregur sig áfram og ýtir sér fram og til baka og útum allar trissur. Hún er byrjuð að myndast við að setja ... Lesa meira

mamma - babba

Skráð þann 29. nóvember 2008 kl. 10:05 | Engar athugasemdir

Litla Dís er bara farin að spjalla á fullu og segja mamma og pabbi  - ekki í neinu samhengi svosem en er farin að nota þessi orð :D - Svaka dugleg

Mamma prinsessa

Skráð þann 29. október 2008 kl. 23:44 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var komin upp í rúm og var á leiðinni að fara að sofa og ég var að labba útúr herberginu hennar þegar heyrist í skottunni „Mamma - þú ert svo falleg!“ awww takk elskan mín sagði ég náttúrlega og þá heyrðist í henni ... Lesa meira

Veikindi

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:50 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla greyið vaknaði aðfaranótt mánudags grátandi og eftir nokkrar umræður komst ég að  því að henni væri svona illt í eyrunum. Við vorum heillengi að koma í hana verkjalyfjum en þrátt fyrir þau harðneitaði hún að leggjast ... Lesa meira

Vandað mál ;)

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:46 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla krúttbomba er í markvissri málörvun á leikskólanum og þar var hún greinilega að æfa sig í að segja „vatn“ (hún sagði nefnilega alltaf Fatn) og svo er hún að æfa sig á þessu heima og segir vv vv vv vatn  - rosa dugleg. En það ... Lesa meira

Ormur

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:43 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja er orðin alger veltikerling, það er nú töluvert síðan hún velti sér í fyrsta skiptið en hún hefur eitthvað verið að spara sig eftir frumraunina en núna undanfarna daga má maður varla blikka augunum án þess að hún sé komin út á ... Lesa meira

Baðskvísur

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:41 | Engar athugasemdir

Við erum svo ótrúlega heppin með fjölskyldur að við fengum styrkveitingu fyrir make-overi á baðherbergið hjá okkur. Okkur til mikillar gleði kom í ljós að það var hægt að setja 160 cm bað inn í baðherbergið eftir að sturtunni var hent þannig nú geta litlu ... Lesa meira

Litla Dís alltaf á spjallinu

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:32 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja er búin að bæta 2 orðum í orðaforðann, er búin að segja HÆ og MAMMA hehe. Alveg óvart náttúrlega en samt bara sætt - EBS

Masókisti

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:30 | Engar athugasemdir

Ég var að plokka á mér augabrúnirnar og Þórdís Erla sem vill náttúrlega gera allt eins og mamma sín vildi að ég snyrti hennar líka. Ég var nú ekki á því og sagði henni að maður gerði ekkert svona við litlar stelpur, hún væri svo fín ... Lesa meira

Ein sæt

Skráð þann 11. október 2008 kl. 22:10 | Engar athugasemdir

Ein krúttumynd af Bergdísi Freyju (Smella á Lesa meira til að sjá myndina )

Úrræðagóð stelpa

Skráð þann 11. október 2008 kl. 22:09 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var að þvo sér um hendurnar heima hjá langömmu Alidu og náði ekki upp í vaskinn þannig ég þurfti að lyfta henni og þá sagði hún að amma þyrfti bara að kaupa sér lítinn vask svo hún gæti þvegið sér sjálf um ... Lesa meira

Pabbi sterki

Skráð þann 11. október 2008 kl. 22:05 | Engar athugasemdir

Fannar var að bera hillu inn í Ikea (sem við ætluðum að skila) og Þórdís Erla var að labba fyrir aftan hann og segir „Vááá hvað pabbi er sterkur“ hehe ekkert smá stolt af pabba sínum

Steikt stelpa

Skráð þann 5. október 2008 kl. 21:54 | Engar athugasemdir

Ég var að fara að skipta á Bergdísi Freyju og var búin að tilkynna fjölskyldumeðlimum það, þegar ég kem að skiptiborðinu var það aaaðeins upptekið ;)    

Hallló

Skráð þann 5. október 2008 kl. 21:37 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja var eitthvað að væla í bílnum og Fannar var eitthvað að reyna að róa hana og segir „halló halló“ og heyrist þá frá tæplega 4 mánaða stelpunni okkar „allóóó“ !! - Þvílíkt undrabarn sem við eigum :)

Kaffiboð

Skráð þann 5. október 2008 kl. 21:35 | Engar athugasemdir

Í dag fórum við í kaffiboð til Afa Nonna og Lizzie skáömmu og fengum fullt af góðum mat og nammi og hittum líka langömmu og langafa :) Voða gaman

Samstæðuspil

Skráð þann 5. október 2008 kl. 21:34 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla á samstæðuspil með 32 spilum og höfum við mæðgur verið að spila annars lagið, en við höfum alltaf tekið bara hluta af spilinu. Í dag prófuðum við að spila með öllum 32 spilunum og gekk það alveg prýðilega - og Þórdís Erla ... Lesa meira

Sunddrottning

Skráð þann 30. september 2008 kl. 21:50 | 1 athugasemd

Í dag byrjað Þórdís Erla í sundskólanum Svamla í Grafarvogslaug og stóð sig mjög vel. Henni fannst þetta alveg æðislega gaman og ekki skemmdi fyrir að Birta Dís og Þóra Silla vinkonur hennar eru líka í sundskólanum.

Næturbleyjan farin

Skráð þann 30. september 2008 kl. 21:48 | Engar athugasemdir

Þá er Þórdís Erla alveg hætt með bleyju - næturbleyjan var látin fjúka síðastliðna nótt og gekk vel :) Ótrúlega dugleg stelpa

Partý

Skráð þann 29. september 2008 kl. 00:51 | Engar athugasemdir

Í dag fórum við á uppskeruhátíð BG-boltans og þar var margt um manninn eins og vanalega. Fullt hús af krökkum og Þórdís Erla var ekki lengi að skella sér í fjörið og finna sér vini til að leika við :)

Leikfimidrottning

Skráð þann 29. september 2008 kl. 00:49 | Engar athugasemdir

Það síðasta sem ég geri áður en ég fer að sofa er að breiða yfir litlu dísirnar mínar - í gær gekk það þó svolítið brösulega :) Bergdís Freyja var búin að koma sér fyrir þvert í rúminu og með höfuðið upp við ... Lesa meira

Mamma Mia

Skráð þann 28. september 2008 kl. 15:09 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla fór með ömmu Erlu og co. í bíó á Mamma Mia fyrir nokkru síðan og skemmti sér konunglega. Hún er mjög heilluð af myndinni og tónlistinni og spottar plaggöt og diska úr gífurlegri fjarlægð. Hún syngur líka „Mamma Mia - gonna sonna ga ... Lesa meira

F***

Skráð þann 28. september 2008 kl. 15:06 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla sat með límmiðaspjald og var eitthvað mikið að pæla í því og svo kemur hjá henni „fokk!“ - mamman tók náttúrlega andköf og var innilega að vona að sér hefði misheyrst og hváði og kemur þá aftur „fokk - lítið ... Lesa meira

Nýr skammarkrókur?

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:34 | Engar athugasemdir

ÞE fer stundum í skammarkrók/einvist ef hún er sérstaklega óþekk og er hann staðsettur í einu horni íbúðinnar. Áðan var hún svo eitthvað að fiðrildast og „uppgötvar“ annað horn og segir „mamma, er þetta kannski málið - ég get staðið ... Lesa meira

Vagnastelpa

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:27 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja byrjaði að sofa reglulega úti í vagni þann 19. ágúst - áður vorum við búin að vera á svo miklu flakki að það var engin regla á henni

Sperrirófa

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:26 | Engar athugasemdir

Þann 18. september stóð Bergdís Freyja stíf í fæturnar í fyrsta sinn - rosa dugleg og henni finnst þetta svaka sport

Veltikerling

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:25 | Engar athugasemdir

Þann 19. ágúst velti Bergdís Freyja sér af bakinu á magann og þann 22. ágúst velti hún sér af maganum á bakið

Smá fréttir af Bergdísi Freyju

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:23 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja er alveg yndisleg, vær og góð, sterk og stinn, falleg og flott. Hún byrjaði að súpa hjá mömmu sinni um klukkustund eftir að hún fæddist og finnst það alveg voðalega gott. Eins og systir sín þurfti hún sko enga brjóstagjafakennslu heldur gerði þetta eins og ... Lesa meira

Góðar systur

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:22 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla er rosalega góð við systur sína. Fyrsta sem hún gerir á morgnana er að knúsa hana og hún passa vel upp á að fá að knúsa hana fyrir nóttina og breiða ofan á hana sæng. Oft leggst hún hjá henni á leikteppinu og leikur við hana og talar ... Lesa meira

Fyrsta sundferðin

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:22 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja fór í sund í fyrsta sinn – henni leist reyndar ekkert á það og grenjaði bara þannig mamman fór uppúr með hana fljótlega á meðan Alida Ósk og Þórdís Erla skemmtu sér ofan í lauginni. En hún byrjar í ungbarnasundi um miðjan ... Lesa meira

Berir strákar

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:21 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var í heimsókn hjá Alidu Ósk frænku og þar voru í boði tugir sjónvarpsstöðva með ýmsum teiknimyndum en skvísan valdi að horfa á hálfberan teiknimyndakall í sturtu og saknaði hans sárt þegar það komu auglýsingar! - sept ... Lesa meira

Kalli á bakinu?

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:20 | Engar athugasemdir

Þórdís er mikið að hlusta á Kalla á ÞAKINU á leikskólanum, en er alltaf að tala um Kalla á BAKINU! - 22. sept 2008

Þórdís Erla hætt með duddu!

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:19 | Engar athugasemdir

19. ágúst var fyrsti dagur í leikskólanum eftir sumarfrí og í bílnum á leiðinni í leikskólann spurði ÞE um dudduna og uppgötvaðist þá að hún hafði gleymst heima. Tilkynnti skvísan þá að hún væri hætt með duddu og bað mig um ... Lesa meira

6v skoðun

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:17 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja fór í 6v skoðun - þá 6 vikna og 4 daga gömul og var þá orðin 59 cm og 5220 gr. Þórdís Erla fékk líka hæðarmælingu og var 100 cm - stórar og flottar stelpur - 23. júlí 2008

Fyrsta pössunin

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:17 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja fór í fyrsta sinn í langa pössun á meðan m&p fóru í þrítugsafmæli hjá Berki sem var svo bara leynibrúðkaup þeirra skötuhjúa. Amma Sigga kom og passaði skvísurnar og það gekk bara vel og Bergdís Freyja tók pela eins og ekkert ... Lesa meira

Fyrsta brosið

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:16 | Engar athugasemdir

Bergdís Freyja byrjaði að brosa „félagslegu brosi” 5 vikna gömul og er það fallegasta bros í heimi :D Þann 10. júlí kom fyrsta brosið - áður hafa komið nokkur ósjálfráð bros en í dag brosti hún í fyrsta sinn eftir pöntun og það nokkrum sinnum

Bleyjan farin

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:14 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var bleyjulaus í fyrsta sinn allan daginn án slysa, er ofically hætt með bleyju núna nema á nóttunni. - 24. júlí 2008

Pabbaknús

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:14 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla kom heim af leikskólanum og spurði hvar pabbi sinn væri og mamma sagði að hann væri að vinna. Þá spurði hvort hún hvort hann væri á leiðinni og mamma neitaði því. Þvínæst spurði hún hvort hann kæmi bara seint og mamman játti ... Lesa meira

Bleyjan á útleið..

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:13 | Engar athugasemdir

Þórdís er á góðri leið með að hætta með bleyju - er loksins farin að gera sér grein fyrir því hvenær hún þarf á klóið og láta vita - hún er bara alveg að verða fullorðin stóra stelpan okkar. júní/júlí 2008

Sleeping beauty

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:13 | 727 athugasemdir

ÞE var alltaf rosa dugleg að fara sjálf að sofa en eftir mikil veikindi í kringum hlaupabólu í janúar og fleira þá vorum við farin að sitja hjá henni þar til hún sofnaði og lengdist tíminn sem það tók hana að sofna stöðugt þannig stundum sat maður inni ... Lesa meira

Sundormur

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:11 | Engar athugasemdir

ÞE fór með mömmu og Alidu í sund og var ekki alveg sátt við að fara upp úr. Eftir heilmikið hangs í sturtunni þegar bæði hún og ég vorum komnar úr sundfötunum ákveður hún að fara AFTUR í sund og brunar útí laug - allsber og kútalaus og ég ... Lesa meira

Eeeeelsku mamma

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:09 | Engar athugasemdir

Ég var að fara í saumaklúbb og ÞE vildi ekki að ég færi. „Eeeeelsku mamma mín, ekki fara í flaumaklúbb. Mamma ég eeeelska þig svooo mikið, eeeekki fara“ og hékk svo í löppinni á mér. Alveg að kafna úr sleikjuskap hehe - en bara úber krúttleg ... Lesa meira

Þórdís Erla maríuhæna?

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:08 | Engar athugasemdir

Þórdís Erla var vakin og var ekkert alveg sátt við það. Allt í einu heyrist svo í henni: „Ég er ekki maríuhæna - ég er Þórdís Erla!”
- vitum ekki alveg hvaðan þetta kom, líklegast hefur hana verið að dreyma eitthvað skrautlegt - mars 2008

Skíðadrottning

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:06 | 1 athugasemd

Þórdís Erla fór í fyrsta sinn á skíði með Ömmu Erlu og co. Svaka fjör :) - mars 2008

Maður verður að passa hvað maður segir

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:06 | Engar athugasemdir

Ég sat inni hjá ÞE meðan hún var að sofna en skvísan var nú ekki alveg að standa sig nógu vel og var með eitthvað vesen þannig ég ÆTLAÐI að hóta að fara fram...en sagði óvart „Viltu fara fram!“ en leiðrétti mig samt strax og sagði „Viltu að ... Lesa meira

Duuugleg mamma

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:03 | Engar athugasemdir

Mamma var að lesa bókina um Dísu litlu og á hverri bls. vantar eitthvað á Dísu t.d. munninn, skó, hár etc. ÞE vill oftast lesa líka þegar mamma er búin að lesa og sat og las og svo átti ég að segja hvað vantaði og alltaf þegar ég gat rétt horfði ÞE ... Lesa meira

Sollurnar og íþróttaálfarnir

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:03 | Engar athugasemdir

ÞE er frekar upptekin af Latabæ og aðallega Sollu Stirðu og íþróttaálfinum og nú eru bara allir kvenkyns Solla og allir karlkyns íþróttaálfurinn. Pabbatitillinn hefur alveg fengi að víkja og nú gengur Fannar bara undir nafninu Íþróttaálfur hehe- svo má deila um ... Lesa meira

Bleiki fuglinn Bleikur

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:02 | Engar athugasemdir

Þórdís var að skoða svalafernu með fugli á og mamma fór að segja henni frá því að þegar hún hefði verið lítil (mamma) þá hefði hún átt bláan fugl sem var með hvítan depil á hausnum og hét Depill. ÞE: „Einu ... Lesa meira

Upptekin stóra systir

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:01 | Engar athugasemdir

ÞE fór að tala um þegar litla barnið kæmi þá fengi það líka „prinsessududdu“ en ekki hennar samt, við ættum bara að kaupa nýja handa litla barninu. Svo þyrftum við líka að kaupa pela og mjólk handa litla barninu. 
Fannar stakk upp á að kannski þyrfti litla ... Lesa meira

Gott að eiga góða systur..

Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:00 | Engar athugasemdir

Mamma var slöpp eftir ælupest um nóttina og Alida náði í djús handa henni og Þórdís fór að tala um að Alida hefði náð í djús fyrir mömmu. Mamma sagðist þá eiga svo góða systur: ÞE: Já..ég líka.
Mamma: Jaá...hver er ... Lesa meira

Systir eða bróðir?

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:59 | Engar athugasemdir

Það eru miklar pælingar í gangi um bumbubúann.Mamma var að segja ÞE að hún og pabbi væru að fara að fá myndir af litla barninu og nú fengjum við að vita hvort það væri stelpa eða strákur.Þórdís vill endilega fá lítinn bróður alveg eins og ... Lesa meira

Ungfrú stjórnsöm

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:58 | Engar athugasemdir

EBS var með blautt hár og sat inní bíl og setti á sig hettu. ÞE var ekki sátt við það og vildi ekki að mamma sín væri með hettu en EBS útskýrði að henni væri kalt. FFJ settist inn í bíl og lokaði hurðinni og þá kallaði Þórdís ... Lesa meira

Bumban með...

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:57 | Engar athugasemdir

Við vorum á leiðinni í sund og þá gellur í ÞE „Litla barnið líka koma með!!!“ehh..já, ekki beint hægt að taka bumbuna af og skilja barnið eftir heima ;) - jan 2008

Ekki sleikja pabba!

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:56 | Engar athugasemdir

Þórdís stóð með mömmu sinni eins og svo oft áður og pabbi hennar var ekki alveg sáttur og spurði hana hvort hún væri ekki ennþá búin að læra að hún ætti að sleikja pabba upp - Neeeii...segir hún og lítur á mömmu sína. „ekki sleikja ... Lesa meira

Jólasveinakjöt

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:56 | Engar athugasemdir

Það var jólamatur í leikskólanum og krakkarnir fengu hangikjöt og jólaölÞórdís sagði okkur að hún hefði fengið JÓLASVEINAKJÖT og jólakók. - jólin 2007

Mamma sæt

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:51 | Engar athugasemdir

Mamma var að spyrja hvað hún héti:„Sódís Edla Fannasdóttir“Hvað heitir pabbi? „Pabbi Fannasdóttir“Hvað heitir mamma? „Mamma sæt!“ Hún segir líka reglulega. „Ég er sæt“ eða „mamma er sæt“ og telur svo alla upp sem eru sætir, t.d. ... Lesa meira

Alltaf að skreppa...

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:49 | Engar athugasemdir

ÞE alltaf að skreppa eitthvað...klæðir sig í skó og fer að útihurðinni og segist ætla út.Í eitt skipti tekur hún kortaveskið hennar mömmu sinnar og lyklana og ætlar að fara í annað skipti setur hún vínber í lítið dúkkuveski, skellir sér ... Lesa meira

ÓMÆGOD!

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:46 | Engar athugasemdir

Litla gelgjan apar alltaf eftir manni. Heyrist í sífellu í henni „Ó-MÆ-GOD!“ - sumar 2007

Málþroski

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:44 | Engar athugasemdir

ÞE tekur þvílíkum framförum í máli í USA ferðinniTalar meira að segja ensku, yes, I’m an ogor (úr Shrek) - ágúst 2007

Mótorhjólagella

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:43 | Engar athugasemdir

Mamma kemur að sækja ÞE á leikskólann  og Þórdís er að pinna„mótohjól“ - ætlar greinilega að verða eins og afi Nonni ;)

Söngfugl

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:42 | Engar athugasemdir

Byrjaði að syngja fullt af lögum, Gamli Nói, Fljúga hvítu fiðrildin, Afi minn og amma mín, Þórdís datt í kolakassann - mjög fyndið, attikattinóa, allur matur á að fara o.fl. - sept. 2007

Nú er komið að mér!

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:41 | Engar athugasemdir

ÞE vildi fá athygli frá mömmu og suðaði Mamma koddu mamma koddu og mamma var að tala við pabba og sagði já ég skal koma til þín þegar ég er búin að tala við pabba. Nú er ég að tala við pabba og svo kem ég til þín. OK sagði ÞE. 1-2 mín ... Lesa meira

Ný heimasíða

Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:40 | 1 athugasemd

Nú eru stelpurnar komnar með nýja heimasíðu og ritararnir munu reyna að vera duglegir að setja inn efni hérna reglulega. Til að byrja með dæli ég inn færslum sem ég var búin að skrifa á tölvuna en voru ekki komnar á netið :)