Dagbók Dísanna
Fréttir af Þórdísi Erlu
Skráð þann 25. apríl 2009 kl. 21:43
Þórdís Erla er búin að læra að renna upp sjálf og læra að róla sér sjálf. Í lok mars fór hún og fékk rör í eyrun í annað sinn, en hún er búin að vera full af slími í eyrunum og hefur það haft áhrif á heyrnina en rörin ættu að bæta úr því. Hún er með mikinn málskilning og orðaforða og notar hendurnar mikið þegar hún er að tala enda lærir hún tákn með tali á leikskólanum sínum og hefur mjög gaman að því. Hana vantar þó enn nokkur hljóð inn í eins og t.d. R og S+samhljóða en hún tekur stöðugum framförum þannig þetta er allt á góðri leið. Hún fór í 3,5 árs skoðun í febrúar og kom vel útúr henni - var reyndar vísað til augnlæknis þar sem hún mældist ekki með sömu sjón á báðum augum í skoðuninni (samt góða sjón á báðum) en sá svo bara jafnvel með báðum augum hjá augnlækninum þannig að það varð ekkert meira úr því.
Ímyndunaraflið er gífurlegt og er hún mjög dugleg í að þróa alls konar leiki, ákveða hlutverk og leikstýrir svo eins og Óskarverðlaunahafi ;) Um daginn vorum við til dæmi í mömmó og var hún mamman og var að keyra með okkur í bíó, hún kom við í búð til að kaupa nammi áður en við færum í bíóið og lét mig bíða í bílnum á meðan. Svo komum við í bíóið og þá hljóp hún fram til að kaupa popp en kom til baka og sagði að við værum í vitlausu bíó - myndin sem við ætluðum að sjá væri ekki sýnd í þessu bíói þannig við þurftum að að halda áfram að keyra og fara í næsta bíó! Alger steik þessi litla dúlla ;)
Ný athugasemd