Dagbók Dísanna

Fréttir af Bergdísi Freyju

Skráð þann 25. apríl 2009 kl. 21:43
Nú er Bergdís Freyja orðin 10 mánaða og er dugleg að labba með. Þriðja tönninn byrjaði að brjótast fram í dag og fylgdu því miklar kvalir fyrir litla greyið. Er hún þá með tvær  í neðri góm og eina framtönn hægra megin í efri góm.

Hún er afskaplega glöð og hamingjusöm alltaf - ótrúlega þægileg lítil krúttmús. Hún fór að sofa alla nóttina um seinustu mánaðarmót þegar mamman skrapp í húsmæðraorlof yfir helgi.

14. apríl byrjaði hún á leikskóla og er hún yngst þar. Hún var í aðlögun í viku og gekk það mjög vel, henni finnst bara ofsa gaman að hafa alla þessa krakka í kringum sig, er dugleg að borða og er bara alveg sátt við þetta allt saman. Hún er reyndar bara hálfan daginn á leikskólanum og þar af er hún sofandi í 2-3 tíma í vagninum sínum. Þann 20. apríl var aðlögun svo lokið og mamman átti að byrja í vinnunni en á sunndeginum veiktist litlan snúllan þannig að hún var bara heima með pabba sínum megnið af vikunni  -fór bara í leikskólann á föstudeginum.

Hún kann að sýna hvað hún er stór og hvað hún er sterk. Hún kann að segja mamma, amma, pabbi og voff. Hún geltir bæði á hunda og ketti - gerir lítinn greinarmun þar á milli og æsist öll upp ef hún sér litla krakka.

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan