Dagbók Dísanna

Afmælisstelpur

Skráð þann 11. júní 2009 kl. 22:00
Síðastliðinn sunnudag varð Bergdís Freyja 1 árs og á morgun verður Þórdís Erla 4ra ára. Við héldum sameiginlega veislu fyrir þær á sunnudaginn og þær fengu fullt fullt af gestum og fínum gjöfum og áttum við öll góðan dag sem endaði svo í grillveislu. Tennurnar hrúgast upp í Bergdísi núna og er hún komin með 6 tennur og fleiri rétt ókomnar. Hún fór í 1 árs skoðun í dag og var 7900 gr og 74,5 cm. Frekar smágerð og alveg dottin af upphaflegu kúrfunni sinni en rosa fín samt. Hún reyndist vera með eyrnabólgu greyið og er því byrjuð á fyrsta sýklalyfjaskammtinum sínum - en hún kvartar nú ekki mikið yfir því. Alger harðjaxl eins og kvenfólkið í þessari fjölskyldu.

Hún er orðin alveg svakalega dugleg að ganga með og við bíðum spennt eftir að hún fari að sleppa sér. Hún stóð ein úti á gólfi í svona 10-15 sek áðan en byrjaði að riða um leið og hún fattaði það hehe ;)

Á morgun ætlum við í sumarbústað með vinum okkar og verða tvær afmælisskvísur á svæðinu þannig það verður að sjálfsögðu að baka smá í bústaðnum ;)

Þórdís er orðin svo stór og þroskuð. Hún er farin að vera alein úti í lóð að leika sér - leikur sér mikið við nágrannastelpuna sem er 1,5 ári eldri og er hún mjög ánægð að hafa fundið félagsskap svona í nágrenninu. Hún er alger gelgja og heyrast frasar eins og „ÓMÆGOD!!“, „Já Sæll!“ og „Ertu ekki að grínast í mér!“ daglega á þessu heimili.

Þær systur eru rosalega góðar vinkonur og leika sér mikið saman. Þórdís er dugleg að fara að kíkja á gluggann á deildinni hennar Bergdísar þegar hún er úti að leika á leikskólanum og þegar þær eru úti á sama tíma límir Þórdís sig við litlu systur, fremur en að leika við vinkonur sínar. Hún er rosalega stolt og ánægð með litlu systur sína og Bergdís Freyja lítur mikið upp til stóru systur og er alltaf að reyna að fá hana með sér í einhver fíflalæti :D

essay writing services sagði:

Skráð þann 7. júlí 2011 kl. 08:55 | http://essaywritingservices.org/index.php
I think your baby is very much cute and happy!

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan