Dagbók Dísanna
Upptekin stóra systir
Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:01
ÞE fór að tala um þegar litla barnið kæmi þá fengi það líka „prinsessududdu“ en ekki hennar samt, við ættum bara að kaupa nýja handa litla barninu.
Svo þyrftum við líka að kaupa pela og mjólk handa litla barninu.
Fannar stakk upp á að kannski þyrfti litla barnið föt og ÞE samþykkti það nú og ætlar að fara með okkur að kaupa föt.
Svo á ég (mamma) að hjálpa henni að klæða litla barnið í fötin!
Nóg að gera hjá ÞE þegar litla barnið fæðist greinilega, gott að fá smá hjálp frá mömmu ;)
Ný athugasemd