Dagbók Dísanna

Sumarfrí

Skráð þann 19. júlí 2009 kl. 20:57
Litlu Dísirnar eru komnar í sumarfrí á leikskólanum en þar sem foreldrarnir eru ekki alveg jafnheppnir þá fengu skvísurnar Margréti "stjúpfrænku" til að koma og passa sig fyrstu vikuna og svo fóru þær í pössun til ömmu Erlu. Þar er stíft skemmtiprógramm alla daga og trampólín í garðinum þannig þær skemmta sér konunglega þar. Á meðan Bergdís Freyja tekur lúrinn sinn fer Þórdís Erla svo í „ömmuskólann“ og er þar að læra stafina, hljóðin og tölustafina með góðum árangri.

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan