Dagbók Dísanna
Maður verður að passa hvað maður segir
Skráð þann 26. september 2008 kl. 01:06
Ég sat inni hjá ÞE meðan hún var að sofna en skvísan var nú ekki alveg að standa sig nógu vel og var með eitthvað vesen þannig ég ÆTLAÐI að hóta að fara fram...en sagði óvart „Viltu fara fram!“ en leiðrétti mig samt strax og sagði „Viltu að ég fari fram!“ en ÞE tók mig náttúrlega á orðinu og strunsaði útúr herberginu með glott á vör - litla dýrið!
19. mars 2008
Ný athugasemd