Dagbók Dísanna
Þórdís Erla hætt með duddu!
19. ágúst var fyrsti dagur í leikskólanum eftir sumarfrí og í bílnum á leiðinni í leikskólann spurði ÞE um dudduna og uppgötvaðist þá að hún hafði gleymst heima. Tilkynnti skvísan þá að hún væri hætt með duddu og bað mig um að koma þeim skilaboðum til starfsfólksins – sem ég og gerði – og í hvíldinni var þetta ekkert mál. Við ræddum þá um að gefa dýrunum í húsdýragarðinum duddurnar daginn eftir og leist henni vel á það og var ansi stolt með að vera búin að gefa duddurnar sínar uppá bátinn og hringdi nokkur símtöl til að tilkynna stórtíðindin.
Ég fann barna-föndurskæri sem ég hafði keypt fyrir löngu og ákvað að gefa henni þau fyrir að vera svona stór stelpa og lét hana fá blöð til að klippa – en neinei, snúllan vildi bara klippa duddurnar sínar!! Hún sá nú reyndar svolítið eftir því þegar hún fór að sofa og átti pínu bágt á leikskólanum daginn eftir en svo var hún voða ánægð með að gefa dýrunum sundurklipptu duddurnar og er búin að standa sig eins og hetja, þó auðvitað hafi komið smá „saknaðarmoment“ af og til
Ný athugasemd