Dagbók Dísanna
Smá fréttir af Bergdísi Freyju
Bergdís Freyja er alveg yndisleg, vær og góð, sterk og stinn, falleg og flott. Hún byrjaði að súpa hjá mömmu sinni um klukkustund eftir að hún fæddist og finnst það alveg voðalega gott. Eins og systir sín þurfti hún sko enga brjóstagjafakennslu heldur gerði þetta eins og atvinnumanneskja frá upphafi, mömmunni til mikillar gleði. Hún er búin að vera mjög fljót að styrkjast og byrjaði fljótt að halda haus smá tíma í einu og er nánast alveg með vald á honum núna. Hún er rosalega stinn og alveg sjúklega sterk og þegar hún kvartar þá heyrist sko vel í henni. Hún gerir það nú ekkert sérlega mikið og í langflestum tilfellum er hún bara að kalla á mat. Hún var reyndar með einhverja magakrampa í vikunni en þeir virðast vera á undanhaldi núna sem betur fer. Þrátt fyrir stutta ævi er hún búin að prófa ýmislegt. Hún fór til dæmis út að borða með okkur á Caruso á 2ja vikna afmælinu sínu ásamt afa Smára, Bjarka, Kristínu og hennar fjölskyldu og aftur fór hún út að borða þegar hún var tæplega 3ja vikna með mömmu, afa Smára, Kristínu, Vildísi og Charles.
Hún er byrjuð að hjala aðeins - agúúú - voða sætt
Þegar maður skiptir á hennir er hún voða hrifin upptekin af skugganum af hendinni sinni sem kastast á vegginn við skiptiborðið - starir alveg dáleidd á hann.
- skrifað 3. júlí 2008
Ný athugasemd