Dagbók Dísanna
Leikfimidrottning
Skráð þann 29. september 2008 kl. 00:49
Það síðasta sem ég geri áður en ég fer að sofa er að breiða yfir litlu dísirnar mínar - í gær gekk það þó svolítið brösulega :) Bergdís Freyja var búin að koma sér fyrir þvert í rúminu og með höfuðið upp við leikfang í einu horninu (hefur væntanlega verið að reyna að éta það). Þegar ég ætlaði að breiða yfir hana færði hún sig alltaf þannig að ég hitti aldrei ofan á hana! Sneri sér í 180°og var svo alltaf að fara upp með fæturnar og bossann þannig ég kom aldrei sænginni ofan á hana - hún var steinsofandi í öllum þessum æfingum - bara krúttlegast. Ef maður gæti nú bara nýtt sér þessa tækni að vera í brjálaðri leikfimi á meðan maður sefur væri maður sko með drop-dead gorgeous líkama hehe ;)
kv. EBS
Ný athugasemd