Dagbók Dísanna
Masókisti
Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:30
Ég var að plokka á mér augabrúnirnar og Þórdís Erla sem vill náttúrlega gera allt eins og mamma sín vildi að ég snyrti hennar líka. Ég var nú ekki á því og sagði henni að maður gerði ekkert svona við litlar stelpur, hún væri svo fín eins og hún væri en áfram hélt hún að suða þannig ég ákvað að plokka af henni eitt hár og bjóst við að þá myndi hún ekkert biðja um augabrúnablokkun tja allaveganna næstu 10 árin ;) En neinei hún var nú ekki á því að viðurkenna að það væri ekkert sérlega þægilegt að plokka á sér augabrúnirnar þannig hún sagði bara „þetta var mjög gott!“ - annaðhvort er hún masókisti eða leggur hvað sem er á sig til að vera eins og mamma besta ;)
- EBS
Ný athugasemd