Dagbók Dísanna
Baðskvísur
Við erum svo ótrúlega heppin með fjölskyldur að við fengum styrkveitingu fyrir make-overi á baðherbergið hjá okkur. Okkur til mikillar gleði kom í ljós að það var hægt að setja 160 cm bað inn í baðherbergið eftir að sturtunni var hent þannig nú geta litlu dísirnar sko buslað og leikið sér. Þær eru báðar búnar að prófa baðið og voru hæst ánægðar með þetta, enda miklu skemmtilegra að busla í baði en að busla í sturtu :) Foreldrarnir eru náttúrlega ekki síður ánægðir með þessa nýju breytingu og húsmóðirin mjög sátt við að fá þvottahús upp í íbúðina (þó að hún hafi þurft að fórna elsku fataherberginu sínu undir það) - það er bara ekkert svo mikið sport að þurfa að hlaupa hálfmaraþon upp og niður alla þessa stiga til að skella í eina þvottavél í kjallaranum :) Amma Erla og Þorgeir eru búin að standa sig eins og hetjur í þessum framkvæmdum og svo píparaðist Jónas frændi Fannars líka eitthvað fyrir okkur. Þetta er þó ekki allt tilbúið enn en svona mesta „vesenisvinnan“ búin skilst mér (ég er prinsessa og kem ekki nálægt þessu hehe)
- EBS
Ný athugasemd