Dagbók Dísanna
Ormur
Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:43
Bergdís Freyja er orðin alger veltikerling, það er nú töluvert síðan hún velti sér í fyrsta skiptið en hún hefur eitthvað verið að spara sig eftir frumraunina en núna undanfarna daga má maður varla blikka augunum án þess að hún sé komin út á gólf af leikteppinu sínu. Ég og Þórdís Erla erum alltaf að reyna að „loka“ hana inni með því að smella upp köntunum á leikteppinu en hún rúllar sér hiklaust yfir þá hehe „meiri kellingin“ eins og við mæðgur segjum alltaf :)
Ný athugasemd