Dagbók Dísanna

Vandað mál ;)

Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:46

Þórdís Erla krúttbomba er í markvissri málörvun á leikskólanum og þar var hún greinilega að æfa sig í að segja „vatn“ (hún sagði nefnilega alltaf Fatn) og svo er hún að æfa sig á þessu heima og segir vv vv vv vatn  - rosa dugleg. En það fyndna er að hún er farin að heimfæra þetta yfir á önnur orð. Eins og um daginn var hún að tala um „Fikk“ (Fisk) og við vorum að benda henni á að segja fiSK og þá byrjað hún vv vv vv FIKK!! - Ótrúlega stolt hehe


Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan