Dagbók Dísanna
Veikindi
Skráð þann 21. október 2008 kl. 23:50
Þórdís Erla greyið vaknaði aðfaranótt mánudags grátandi og eftir nokkrar umræður komst ég að því að henni væri svona illt í eyrunum. Við vorum heillengi að koma í hana verkjalyfjum en þrátt fyrir þau harðneitaði hún að leggjast niður því þá kom svo mikill þrýstingur þannig við mæðgur skriðum fram í stofu og sváfum í Lazy-boynum. Á mánudeginum var hún svo drulluslöpp, drakk sama og ekkert, neitaði að borða og var með heita og mókti bara á milli þess sem hún horfði á teiknimyndir en seinnipartinn fékk hún sem betur fer lystina og hresstist öll.
- EBS
Ný athugasemd