Dagbók Dísanna
Mamma prinsessa
Skráð þann 29. október 2008 kl. 23:44
Þórdís Erla var komin upp í rúm og var á leiðinni að fara að sofa og ég var að labba útúr herberginu hennar þegar heyrist í skottunni „Mamma - þú ert svo falleg!“ awww takk elskan mín sagði ég náttúrlega og þá heyrðist í henni „Þú ert í svo fallegum kjól - þú ert alveg eins og prinsessa!“
Á maður krúttlegustu stelpur í heima eða hvað! ;)
Ný athugasemd