Dagbók Dísanna

6910 gr og 66,5 cm

Skráð þann 29. nóvember 2008 kl. 10:12
Bergdís Freyja var 6910 gr og 66,5 cm í 5 mánaða skoðuninni sem hún fór í 6. nóv síðastliðinn. Rosa flott stelpa - öllu nettari en stóra systir sem var 1100 grömmum þyngri og 3 cm lengri á sama tíma :) Skvísan er rosa dugleg að vera á maganum og dregur sig áfram og ýtir sér fram og til baka og útum allar trissur. Hún er byrjuð að myndast við að setja hnén undir sig en er ekki enn komin upp á allar fjórar. Hún byrjaði að sitja smá í kring um 5 mánaða afmælið sitt en er ekkert sérstaklega stöðug ennþá en tekur framförum á hverjum degi. Hún er ennþá bara á brjósti - fékk reyndar smá grautarsmakk fyrir ca. viku og tók því bara vel en hefur ekkert fengið síðan en fer nú að fara að fá eitthvað fljótlega - enda að verða 6 mánaða ;)

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan