Dagbók Dísanna
Jólasveinahræðsla
Skráð þann 25. desember 2008 kl. 23:13
Þórdís Erla var ansi skelkuð við jólasveina í fyrra en fékkst þó til að setja skóinn útí glugga - þ.e.a.s stofugluggann - henni leist ekkert á að hafa skóinn í sínum glugga. Síðan í nóvember hefur hún talað reglulega um að hún sé sko ekkert hrædd við jólasveina lengur - það hafi nú bara verið þegar hún var 2ja ára og sagði öllum sem heyra vildu að jólasveinarnir væru góðir og það væru bara litlir krakkar sem væru hræddir við þá. En svo kom að því að setja skóinn út í glugga í ár og þá stífnaði mín öll upp, varð rosalega stressuð og vildi bara ekkert vita af einhverjum jólasveini að príla í kringum gluggann hennar. Við reyndum að koma með ýmsar lausnir stungum upp á því að setja skóinn bara inn í stofu/eldhús/hjónaherbergi, semja við jóla um að setja gjöfina hennar í póstkassann, koma á meðan hún væri á leikskólanum og bara allt sem okkur datt í hug en allt kom fyrir ekki - litla dúllan vildi bara alls ekki vita af jóla og harðneitaði að fá í skóinn þannig jóli lét hana bara í friði með það og nú segist hún bara ætla að fá í skóinn þegar hún verður 5 ára - fullviss um að hún verði búin að yfirstíga jólasveinaóttann þá :) Henni finnst þeir reyndar alveg líka svolítið spennandi - bara úr hæfilegri fjarlægð
Ný athugasemd