Dagbók Dísanna

Framfarir hjá BF

Skráð þann 25. desember 2008 kl. 23:41
Bergdís Freyja krúttumús tekur miklum framförum þessa dagana. Hún er orðin frekar stöðug og dugleg að sitja sjálf. Hún dregur sig áfram af mikilli tækni og fór í fyrsta sinn upp á fjóra fætur föstudaginn 19. des sl. - Berglind vinkona okkar er vitni að því - mamman var bara að stússast í eldhúsinu þegar skvísan ákvað að sýna sig aðeins fyrir gestunum. Í seinustu viku reisti hún sig svo sjálf upp á hnén (kraup) í rúminu hennar Þórdísar Erlu og stóð einnig sjálf eftir að mamman reisti hana upp - Svaka dugleg. Hún er alltaf jafn góð og yndisleg - brosir bara og er sæt :) Þann 15. des sl. byrjaði hún að borða og fékk hún hirsigraut. Hún byrjaði á því að fá að borða á kvöldin en ca. viku seinna bættist svo hádegismatur við. Þetta gengur bara vel hjá okkur og samanstendur matseðillinn hingað til af hreinum hirsigraut, sætri kartöflu, banana eða grautar/kartöflu blöndu eða grautar/bananablöndu. Hún fær alltaf vatn með og drekkur það ýmist sjálf úr stútkönnu eða úr venjulegu glasi með smá hjálp og svo blessað brjóstið í önnur mál og stundum í eftirrétt ;)

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan