Dagbók Dísanna
Aðfangadagur og jóladagur
Skráð þann 26. desember 2008 kl. 00:32
Aðfangadagur var voðalega fínn hjá okkur. Amma-Sigga, Bjarki, Amma-Erla, Þorgeir og Anton komu til okkur og borðuðum við möndlugraut í forrétt, Fannar hreppti möndluna og fékk agalega krúttlega englastyttu í möndlugjöf. Í aðallrétt var svo bæði heitur hamborgarahryggur með sósu og kaldur hamborgarahryggur með bræddu smjöri og meðlæti, jólaöl og allur pakkinn. Þórdís Erla fékk jólaöl í tilefni dagsins (fær annars ekki gos) og nýtti sér það vel hehe. Undan fína jólatrénu sem Fannar og Þórdís Erla skreyttu flæddu pakkarnir í öllum stærðum og gerðum og þökkum við öllum fyrir frábærar gjafir.Þórdís Erla fékk handgerða dúkkuvöggu, búðardót, verkfærakassa, hello-kitty gemsa (dót), Bratz dúkku, húfu og vettlinga, Latabæjar DVD, Littlest Petshop fígúrur, gjafabréf fyrir ferð í húsdýragarðinn, sund og gistingu hjá Alidu Ósk frænku, baðbombu, 2 x púsl, bækurnar Emma gerir við og Maxímús músíkús, ljósaálfabók, kjól, prinsessunáttföt, matarstól fyrir dúkku, peninga inn á framtíðarreikninginn og peninga til að eyða á útsölunum og geisladiskinn um Pétur og Úlfinn.
Bergdís Freyja fékk samfellu, sokkabuxur og innskó úr Janusarbúðinni, dótalest með hljóðum og myndum, stóran smekk sem á stendur „Ég er smekkleg“, húfu og vettlinga, spegil í bílinn svo hún geti spjallað við bílstjórann, peninga inn á framtíðarreikninginn og peninga til frjálsra afnota, baðsæti, fæðunet, heimaprjónað vesti/stuttan kjól, prjónasokka og bol, jogginggalla, 2 x fiðrildadót með ljósum og fullt af lögum og harðspjaldabók.
Saman fengum við fjölskyldan svo Mamma Mia diskinn og ætluðu augun að poppa út úr ÞE þegar sá pakki var opnaður - enda er hún mikill Mamma Mia aðdáandi eftir að hún fór með ömmu sinni að sjá myndina í bíó. Einnig fengum við rosalega fallegt handgert postulínsjólatré með ljósum frá ömmu og afa Nesk.
Mamma og pabbi fengu saman leirpott, kökuspaða, 2 sett af hitaplöttum, salt og piparstauka í formi kúa, peninga, baðherbergisframkvæmdir og málverk og síðast en ekki síst fallega handgerða jólabjöllu sem ÞE gerði í leikskólanum.
Mamma fékk sokkabuxur, 2 gjafabréf í Kringluna, naglalakk, augnskugga, brúnkuklút, gamaldags kakókönnu (ótrúlega flotta)
Pabbi fékk Dogma bol, belti, fína peysu, 2 gjafabréf í Kringluna
Á jóladag horfðum við á teiknimyndir og Mamma Mia allan daginn og kúrðum þess á milli og fórum svo og borðuðum rosa góða purusteik hjá ömmu Siggu og Bjarka - þvílíkt letilíf bara : )
Sigga Stína og Dagbjartur Ási sagði:
Ný athugasemd