Dagbók Dísanna
Mamma sæt
Skráð þann 26. september 2008 kl. 00:51
Mamma var að spyrja hvað hún héti:
„Sódís Edla Fannasdóttir“
Hvað heitir pabbi?
„Pabbi Fannasdóttir“
Hvað heitir mamma?
„Mamma sæt!“
Hún segir líka reglulega. „Ég er sæt“ eða „mamma er sæt“ og telur svo alla upp sem eru sætir, t.d. amma, pabbi, Birta Dís, Þóra Silla.
Þegar maður er búin að skamma hana - kreistir hún andlitið á manni „mamma bosa (brosa) - mamma sæt” - kann sko alveg að sleikja mann upp!
- sumar 2007
Ef maður er búin að skamma hana og hún er að reyna að sleikja mann upp, brosir hún sínu blíðasta, hlær og segir „mamma fyndið, ha ,fyndið mamma!“
- nóv/des 2007
Ný athugasemd