Dagbók Dísanna

Rest og áramót

Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:28
Á annan í jólum fórum við í jólaboð til Alidu frænku og var fullt af kræsingum þar ásamt skemmtilegum pakkaleik. Á milli jóla- og nýárs vorum við bara í leti heima, horfðum á teiknimyndir. Á gamlárskvöld kom svo amma Sigga til okkar og við vorum í þvílíkum rólegheitum hérna. Bergdís Freyja sofnaði um 8 leytið en vaknaði við öll lætin á miðnætti svo við gátum knúsað hana og kysst um leið og nýja árið gekk í garð. Þórdís Erla fór með pabba sínum út að skjóta upp - en varð svo skíthrædd við öll lætin þannig hún kom bara inn aftur og fékk 2 stjörnuljós úti á svölum. 

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan