Dagbók Dísanna

Viðburðarík vika hjá Bergdísi Freyju

Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:37
Laugardaginn 3. janúar sl. fann EBS fyrstu tönnina í BF - vinstri framtönn í neðri góm. Skvísan er búin að vera undanfarið á þvílíka fartinu - þeysast um gólfið með „réttum“ skriðhreyfingum og búin að vera að æfa sig að fara upp á 4 fætur en hefur ekki alveg náð að samhæfa þetta tvennt og dottið nokkrum sinnum á nebbann í þessum æfingum. Á föstudaginn (9.jan) þegar hún var 7 mánaða og 2ja daga gömul tókst henni að blanda þessu öllu saman og skríður nú um eins og herforingi á ógnarhraða. Hún er horfin bara ef maður blikkar augunum! Í gær (10. jan) stóð hún svo upp nokkrum sinnum í rúminu sínu þannig það er alveg brjálað að gera þessa dagana. Enda æfir hún sig jafnt í svefni sem vöku og vaknar oft við  það á nóttunni að hún er komin á 4 fætur eða í einhverjar undarlegar stellingar. Svo reisir hún sig upp - hangir á rúmbríkinni sinni með hendurnar og horfir á mann þessum risastóru hvolpaaugum og vælir ef hún vill komast upp í rúm til okkar - og það er svona pretty much ómögulegt að hundsa hana í þessarri stellingu þannig litla dekurdýrið fær náttúrlega að koma og fá sér smá sopa eftir hentugleika en er svo oftast skilað í rúmið aftur því hún er alltaf á svo miklu flakki að við erum skíthrædd um að hún fleygi sér útúr hjónarúminu.

Ný athugasemd

Nafn:
Netfang:
Vefsíða:
Athugasemd:
Sláðu inn stafina sem þú sérð á myndinni hér að neðan