Dagbók Dísanna
Tölvuséní
Skráð þann 11. janúar 2009 kl. 11:40
Þórdís Erla er orðin tölvuséní - kannski ekki skrítið með þessa tölvunördaforeldra - en samt, við vorum steinhissa þegar við komumst að því hvað hún er orðin klár. Hún er búin að ná fullri stjórn á músinni - og það fartölvumús sem er nú aðeins erfiðari að stjórna en utanáliggjandi mús. Hún spilar tölvuleikinn Doppu alveg sjálf - veit hvað hún á að gera í hverjum leik og skiptir leikandi á milli leikja. Einnig er hún farin að fikta sig áfram og tókst að opna iphoto í gær og var bara á fullu að skoða myndir af fjölskyldunni. Ótrúlega dugleg og klár stelpa
Ný athugasemd