Nafnið mitt

Mamma og pabbi vildu velja mér nafn í takt við nafn stóru systur. Mamma var búin að vera með Bergdísar nafnið í huga löngu áður en ég kom í bumbuna og pabba leist vel á það. Freyju nafnið þykir þeim líka fallegt, það stuðlar vel við föðurnafnið mitt og seinna nafnið hans pabba er Freyr þannig það er í höfuðið á honum. Berg og Björg eru einnig sami nafnstofn þannig ég heiti líka í höfuðið á mömmu og svo er ég lítil dís eins og stóra systir :) Bergdís Freyja er fallegt, hreint og kröftugt nafn sem fer mér afskaplega vel.

Bergdís

Samkvæmt bókinni Hvað á barnið að heita merkir Bergdís bjargvættur

Eftirfarandi upplýsingar eru úr bókinni Nöfn Íslendinga

Nafnið kemur fyrir í Landnámu en virðist ekki notað aftur fyrr en á 20. öld. Engin kona bar nafnið árið 1910 en fjórum var gefið það á áratugnum 1921-1930. Í þjóðskrá 1989 voru skráðar 50 Bergdísir. Nafnið þekkist einnig í Noregi. Það er sett saman af forliðnum Berg- og viðliðnum -dís.

Berg-
Algengur forliður karla- og kvennanafna t.d.
Bergmundur, Bergþór, Bergdís, Bergljót. Af honum eru leiddar klofningsmyndirnar Bjarg- í t.d. Bjargmundur, Bjargheiður og Björg- í Björgólfur, Björghildur. Forliðirnir eru skyldir sögninni að bjarga „hjálpa, frelsa, forða“ í fornháþýsku bergan, gotnesku bairgan.

-dís
 Nafnið kemur fyrir í fornbókmenntum, t.d. Fornaldarsögum Norðurlanda. Síðan eru ekki heimildir um það fyrr en í nafnatali séra Odds á Reynivöllum árið 1646. Samkvæmt manntalinu 1703 hétu sex konur Dís. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölunum 1801, 1845 og 1910 en í þjóðskrá 1989 voru átta konur skráðar því að fyrra nafni eða sem einnefni en að minnsta kosti 180 að síðara nafni. Dis er einnig notað sem skírnarnafn í Svíþjóð.
    
Viðliðurinn -dís er algengur í kvennanöfnum, t.d. Aldís, Bryndís, Guðdís, Valdís.
Nafnið er sömu merkingar og dís „gyðja, goðvera“.

Freyja
Ofannefndar bækur hafa þetta að segja um Freyju:
Ástar og frjósemisgyðja. Algeng kvenkenning. Hin fagra og tigna gyðja ástar og frjósemi er af vanaætt, dóttir Njarðar og systir hans, og systir Freys. Maður hennar heitir Óður og dætur þeirra eru Hnoss og Gersemi.

Bergdís Freyja
Þann 1. janúar 2008 bar enginn nafnið tvínefnið Bergdís Freyja samkvæmt þjóðskrá  - og líklegast er ég þá eina stúlkan á Íslandi sem ber þetta fallega tvínefni :)
102 báru Bergdís sem fyrsta eiginnafn
126 báru nafnið Freyja sem annað eiginnafn

Fallbeyging

Nefnifall: Bergdís Freyja
Þolfall: Bergdísi Freyju
Þágufall: Bergdísi Freyju
Eignarfall: Bergdísar Freyju