Stjörnukort Þórdísar Erlu

Þórdís Erla Fannarsdóttir - f.12/06/2005 kl. 09.15 í Reykjavík.

Grunneðli og lífsorka
Félagslynd, sveigjanleg og fjölhæf. Þarf hreyfingu og ólík verkefni til að viðhalda lífsorku, m.a. miðlun og margs konar pælingar. Fær kraft með því að vera virk í hópstarfi og verkefnum sem hafa áhrif á samfélagið eða hóp manna.

Hugsun:
Næm, með sterkt ímyndarafl. Myndræn hugsun, innsæi og „nef“ fyrir því hvað er rétt og rangt. Tilfinningarík í máltjáningu. Nýtur þess að beina athygli að samstarfsverkefnum. Hugsun hennar er skörp þegar hún vinnur með mörgum, í teymi.

Framkoma:
Hlý, einlæg og skapandi. Oft áberandi. Hefur gaman af því að vera í miðju og hljóta athygli. Sterk tjáningarþörf.

Tilfinningar og heimili:
Einlæg, lífleg og opinská. Föst fyrir. Þarf lífsstíl sem einkennist af skapandi og skemmtilegum viðfangsefnum. Næm og móttækileg, notar of tilfinningar til að bregðast við umhverfinu. Hjálpsöm og umhyggjusöm í framgöngu.

Ást og samskipti:
Næm og tilfinningarík, en á til að setja upp varnarskel. Þarf öryggi. Tryggur vinur. Verndar þá sem henni þykir vænt um. Vill ekki takmarka ástina við fá, heldur hjálpa öðrum og ná til margra. Óskilyrt ást. Þarf einveru annað slagið.

Markmið og ímynd:
Leggur áherslu á að vera sjálfstæð og fara eigin leiðir í sókn markmiða. Sækir í áskoranir og baráttu. Frumkvöðull.

Framkvæmdir:
Kappsfull, snögg og ákveðin. Þarf að vera líkamlega athafnasöm og takast reglulega á við nýjar áskoranir. Sjálfstæð og beinskeytt. Fær kraft þegar vinna er fjölbreytt, tengist ferðalögum og víkkar sjóndeildarhring hennar. Þrífst í „þekkingarstörfum“.

Lærdómur og agi:
Prófraunir í lífi hennar tengjast bernsku, tilfinningum og fjölskyldu. Að aga tilfinningar og axla ábyrgð vegna heimilis og fjölskyldu. Þarf að takast á við erfið verkefni eða álag útaf málum sem varða samfélagið, annað fólk eða „stóran“ málstað. Innri agi.

Hugsjónir:
Tilheyrir kynslóð sem dáir tækni, vísindi og hópsamstarf. Þarf að færa fórnir vegna vinnu eða heilsumála. Upplausn og óvisa eða sveigjanleiki og skapandi verkefni í tengslum við starf.

Viðhorf og tækifæri:
Trúir á réttlæti og jöfnuð. Það færir henni gæfu að leggja áherslu og félagsmál og samvinnuverkefni. Vaxtartækifæri liggja í námi, skólastarfi, pælingum, miðlun og því að efla með sér jákvæða hugsun.

Nýjungar:
Tilheyrir kynslóð sem skapar byltingu í listum, læknisfræði og viðhorfum til trúmála. Vill frelsi í samskiptum. Laðast að óvenjulegu fólki. Sérstakt innsæi í mannlegt eðli og sálfræði mannlegra samskipta.

Umbreyting:
Tilheyrir kynslóð sem stendur fyrir hreinsunum og umskiptum í ferðamálum, íþróttum, trúmálum og siðfræði. Sterk og einbeitt sjálfstjáning. Vill allt eða ekkert í sambandi við ást, rómatík og skemmtanalíf.