Þórdís Erla

Þórdís Erla fæddist 12. júní 2005 á Landspítalanum. Hún er brosmild og glaðlynd, ákveðin og uppátækjasöm, hlý og hjartagóð, kelin og kærleiksrík og með mjög frjótt ímyndunarafl.
Hún er á leikskólanum Korpukoti og unir sér vel þar. Bestu vinkonur hennar á leikskólanum heita Þórdís og Dagný Lóa. Bestu vinkonur hennar utan leikskólans eru Birta Dís, Þóra Silla og Emelía Ósk.
Solla Stirða er átrúnaðargoðið hennar og bleikt er uppáhaldsliturinn. Þórdísi Erlu finnst gaman að dansa og finnst henni best að vera í pilsi við þá iðju.
Henni finnst gaman að teikna og mála, pússla, kubba og leika sér með ýmis konar smádót ásamt því að vera úti að leika. Hún er mjög dugleg í sundi og er einstaklega hjálpsöm við hin ýmsu húsverk og hjálpar mömmu sinni alltaf við eldamennskuna.
Þórdísi Erlu finnst líka mjög gaman að fara í heimsóknir til vina og ættingja og fær reglulega að gista hjá ömmu Erlu og það finnst henni frábært enda alltaf nóg af fjöri þar. Hún er einnig rosalega góð og umhyggjusöm við litlu systur sína.