Bergdís Freyja


Bergdís Freyja
Bergdís Freyja fæddist 7. júní 2008 á Landspítalanum. Hún er vær og góð og afskaplega þægilegt barn. Hún er mjög athugul og áhugasöm um umhverfi sitt. Hún er mjög stinn og flott og dugleg í alls konar sprikli og leikfimisæfingum. Hún kann að sitja sjálf og er mjög dugleg að ferðast um og styttist í að hún fari að skríða. Hún hefur æðislegan dillandi hlátur og henni finnst pabbi sinn ótrúlega fyndinn kall. Henni finnst stóra systir líka afskaplega merkileg og pælir mikið í henni, enda er Þórdís Erla dugleg að lesa fyrir hana og knúsast og kjassast í henni.